Hér gerast merkilegir hlutir
Leitarbox

12.01.2007 19:49:07 / ernaelli

nenni þessu ekki meir

mér finnst ég ekki vera með nógu merkilega né málefnalega hluti til að tala um hér...ef þið viljið eitthvað frétta af mér hringiði þá í mig eða addið mér erna113@hotmail.com nenni ekki að vera endalaust að tala um að skólinn gangi vel og hvað er í matinn hjá mér, eða hvað ég var full um síðustu helgi!!! mér finnst það ekki spennandi lesning takk fyrir góðar viðtökur samt og hlýhug í minn garð :) adios amigos..... Erna.....merkilega og málefnalega

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 14:00:52 / ernaelli

andskotinn....

ég þoli þetta kjaftæði ekki, ég var búin að skrifa kílómetra langa færslu um mjög merkileg málefni.....þá sjaldan maður skrifar eitthvað !!!

svo bara hvarf það útí bláinn....það hefur greinilega ekki verið svo merkilegt í augum blog.central.is

En ég var í gær í matarboði í Skálateig og það var rosa gaman, við borðuðum dýrindis mat og spiluðum vist :) Sigurbjörg Eva var mikið að leika við Soffíu Náttsól og stóð sig vel við það að passa hana. og Soffí Náttsól er algjör rúsínu snúður :D

oh ég nenni ekki að skrifa meira....bara ein spurning

Ef þið horfið til baka er eitthvað sem þið vilduð hafa gert öðruvísi ???

Ekki að tala um fyllrísrugl eða vinkonudrama, það hefðu allir viljað gera það öðruvísi!!;)

Bless í bili,

Erna Ferna

P.s margur verður af aurum api !!


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 18:52:13 / ernaelli

búbbíbú....

jæja jæja jæja....!!!

eftir mikla íhugun og margar áskoranir hef ég ákveðið að hripa niður örfáar línur hér á þessa viðburðarmiklu síðu!!! .....úúuúuú´´uú ég ræð mér ekki af spenningi !!

allavega...allt gengur vel hér í sveitinni minni! (spurning hvað ég á mikið í henni ;) lífið leikur við okkur !! tími til kominn! andsk..djöfulsins líf !

neinei engan móral..það þýðir ekki :) skólinn er í rífandi uppsveiflu og ég get með sanni sagt að ég mun geta villað mér heimildir sem innfædd enskumælandi kona í hvaða enskumælandi landi sem er, hvort sem það er Bretland, Ástralía eða Suður Afríka.

um síðustu helgi skellti ég mér á leiklistar námskeið...frekar áhugamannalegt en það var samt rosa gaman. ég var held ég næst elst á þessu námskeið og þarna lærði ég Grease dans og að láta eins og hálfviti. En mig grunar að ég hafi ekki þurft að fara á námskeið til að læra það...mig grunar að ég hafi bara kunnað það fyrir. Eða bara fæðst sem einn lítill hálfviti ;) svona öðru hvoru allavega...:haha: en þetta´námskeið varð til þess að maður fékk hugmynd um hvernig leikarar hita sig upp og einnig styrkti þetta sjálfstraust mitt og að maður má alveg vera eins og fífl þó að maður sé ekki búin að drekka 2 kippur af bjór :)

svo fannst mér svolítið notalegt þegar snjórinn kom um daginn...það fylgir honum einhver ákveðin ró og ég veit ekkert notalegra en að sitja uppí sófa og lesa með kertaljós og hlusta á vonda veðrið sem geisar úti...en ég og Sigurbjörg Eva skelltum okkur út í snjóinn og renndum okkur á snjóþotu og nutum góða veðursins og borðuðum snjó...mmmm góður snjór!

eitthvað ætlaði ég annað að segja en ég man ekki hvað það var, svo er ég líka með kjúkling í ofninum og ég þarf að fara að kíkja á hann...svo við fjölskyldan endum ekki með salmonellu...! það er örugglega ekki gaman að fá svoleiðis.

þannig að...

bless í bili ég er minn svili

verið góð við hvort annað...þá gengur allt svo miklu betur :)

Erna J.


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 18:44:37 / ernaelli

Ek er bóndi !!

Ef að ég hefðði verið víkingur þá hefði ég talað svona eins og titillinn er....!

Gaman að því en ég vildi svona bara láta vita að ég er ekki farin yfir móðuna miklu, og mig langar eiginlega ekkert að kíkja þangað alveg strax. Mér finnst ég ennþá vera hálf ómissandi hérna megin :haha:

En skólinn gengur ágætlega bara, mér finnst samt vera komin einhver FSu fýlingur í mig,  ekki nógu dugleg að lesa ég er hálf löt að læra. Mér finnst eins og ég hafi verið miklu duglegri í fyrra en ég fer nú að taka mig á, það þýðir sko ekkert að slá slöku við og vera með einhvern aumingjaskap. Maður kemst ekki langt ef maður er aumingi !! (með fullri virðingu fyrir aumingjum)

Skólinn er samt mjög skemmtilegur og fræðandi ;)

Sveitalífið leikur við okkur og gítarspilið mitt gengur vel, ég kann svona um það bil 3 lög en ekki er hægt að panta mig í partý alveg strax, ég tel mig ekki vera orðna nógu góða en æfingin skapar meistarann og þeir sem þekkja mig vita að ég er meistarinn...!!!

Jæja ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja meira nema það að ég var að komast að því að ég á von á litlum frænda eða frænku en María Mjöll frænka mín á von á erfingja. það var komin tími til að þessi fjölskylda myndi fara að fjölga sér enda er´hún alveg með eindæmum falleg og skemmtileg og ekki til nógu mikið af Hábæjargeninu í samfélaginu :haha:. (þeir sem eru þessu ósammála mega tjá sig einhverstaðar annarstaðar) ;) En ég vil óska Maríu og hennar fjölskyldu innilega til hamingju með þessar gleðifréttir alltaf spennandi þegar einhver sem er skyldur mér fæðist heheh

En nóg í bili ég ætla að fara að lesa The Canterbury Tales sem fjallar um miklar hetjur...:lol:

Erna J...................Lestrarhestur


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 21:36:32 / ernaelli

Hvað er uppi ??

Ekki mikið að gerast þessa dagana, ég var að íhuga um daginn hvort að ég ætti ekki bara að hætta þessu bulli. Ég meina það..... hver hefur áhuga á að vita hvað ég er að gera eða hugsa, ef maður hefur ekki eitthvað merkilegt að segja, á maður þá ekki bara að sleppa þessu ?? :$

En annars er bara allt gott að frétta, enskunámið tekur við á mánudaginn og þá byrjar stíf keyrsla til höfuðborgarinnar....:S ég get ekki sagt að ég né peningaveskið mitt hlakki mikið til, kræst ég á eftir að fara á hausinn....Ekki nema hann Elías minn komi og bjargi mér á síðustu stundu eins og hann hefur gert svo oft áður, þessi elska ;)

Nei nei þetta verður fínt, ég held meira að segja að hún Ruth mín ætli eitthvað að skjótast með mér sem verður bara gaman fröken Erna og Frú Ruth á rúntinum...töff ég verð bara að standa mig svo að ég fái ekki skömm í hattinn....verð að fara að kaupa mér hatt !!

Ég er alveg einstaklega andlaus núna...þetta er ekki mjög skemmtileg blggsíða verð ég að segja of ef ég má vera alveg hreinskilin nenni ég ekki að reyna að gera hana eitthvað skemmtilegri, mig langar ekki að sýna ykkur myndir af mér þar sem að ég á ekkert svo margar sem eitthvað er varið í að horfa á þannig að þið verðið bara að láta þetta duga....svo er aldrei að vita nema að ég nenni að gera eitthvað í vetur því þá þarf ég að hanga í tölvunni allann daginn og læra...:cry:

P.s Sveitin er æði...mæli með henni, sérstaklega Villingaholtshreppnum og öllum sem þar búa...yndislegt fólk, ég hlakka til að eldast í sveitinni :haha:

Hvað ætti nýji sveitabærinn annars að heita ?? einhverjar tillögur ??

Jæja ég nenni ekki að skrifa meir, ég ætla að fara að lesa Hroka og Hleypidóma og gá hvort að það sé nokkuð langt í að Mr. Darcy og Elizabeth fari ekki að ná saman ;)

Þangað til næst......... Erna J


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 21:52:59 / ernaelli

Ég bý í sveit, á sauðfé á beit, og sællegar kýr úti á túni......

Jamm og Jæja mikið er sveitalífið ljúft. Já við erum alflutt bara og búin að slíta öll bönd við menningu, núna geng ég um með gosbrunn í hárinu, rauðum gúmmískóm og rifnum buxum...guð ég er svo smart.

Fyrir ykkur ástarpungana sem eruð að senda mér ástarbréf þá er nýja heimilisfangið...

Erna Megabeib Jóhannesdóttir, Uriðafoss, 801 Selfoss ;)

En þetta er svakalega ljúft, núna þarf maður bara að skipuleggja sig aðeins betur og læra að njóta lífsins....það gengur bara mjög vel.

Við erum nú ekkert mikið búin að ferðast í sumar, við fórum jú á Drangsnes sem er fyrir þá sem ekki vita á hnakkanum á Íslandi og þar býr mikið af góðu fólki það var bryggjuhátið og við tengdafjölskyldan drifum okkur í stuðið, og það var mikið stuð :haha:

Skólinn byrjar svo bara 4. sept og ég get ekki sagt að ég sé að rifna úr spenningi sko...æi stundataflan er ekkert spennandi og svo þegar maður hefur það svona gott í sveitinni þá vill maður ekkert vera að fara þaðan :D

En jæja ég vildi bara láta ykkur vita að það er allt í góðu geimi og umsóknarblaðið í kvenfélagið fer að renna í hús hehe...

Erna Jó...........................í rómantíkinni


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 10:49:44 / ernaelli

allt að gerast....ví ví

Jæja, nú er bara orðið frekar tómlegt í Álfhólum 10, við erum næstum því búin að týna allt út og fara með á Urriðafoss sem verður heimili okkar næsta árið eða svo. Maður er svona nett stressaður núna og er mikið að spá hvað maður sé eiginlega að fara útí. En ég sé eiginlega fleiri kosti við þetta en galla. Jú auðvitað á maður eftir að eiga heima niðrí sveit og engin á eftir að koma og heimsækja mig og ég á eftir að enda inn í hesthúsi að tala við hestana því að ég hef engan til að tala við, og þegar Elli kemur heim úr vinnunni á hann eftir að finna mig ráfandi úti að túni að tala við grasið.

Já það eru miklar líkur á því að þetta endi svona, þannig að ef ykkur þykir vænt um mig þá skuliði bara drullast til að vera dugleg að heimsækja mig, mér er alveg sama þó að ég þekki ykkur ekkert....bara einhver í heimsókn sem talar þokkalega íslensku enska er líka alltí lagi og er ekki nauðgari eða morðingi. þá er alltaf heitt á könnunni :haha:

Nei þetta verður voðalega gott að komast í sveitasæluna frjáls eins og fuglinn og ég held að hún Sigurbjörg Eva hafi mikið gott af þessu. mig langaði alltaf rosalega mikið að eiga heima í sveit þegar ég var lítil... Sigurbjörg Eva er líka komin inn í leikskóla í Þingborg sem er bara frábært og hana hlakkar mikið til að byrja þar :)

en já annars er bara lítið í fréttum, maður gerir lítið nema að vinna og brasa hitt og þetta. Bara að klára að tæma og flytja, við eigum að afhenda 1. ágúst...8|

Þetta er samt rosalega skrítið að það skuli vera komið að þessu, en bara spennandi líka að prófa eitthvað nýtt já og ef manni leiðist þá gengur maður bara í kvenfélagið og kirkjukórinn og bakar kökur og syngur í messum. það er bara gaman :)

En ég ætla að fara að pakka meira, við heyrumst

Erna J..............bóndakona


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 20:21:28 / ernaelli

pirri pirr.......

oh ég var búin að skrifa rosa mikið en svo bara fór það eitthvart út í bláinn....ég nenni ekki að skrifa það aftur, allt gott að frétta að okkur stuðboltunum

Ykkar heittelskaða............Erna J.


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 22:37:46 / ernaelli

dúdúrú...

Hef ekki mikið að segja núna, jú reyndar alveg heilmikið....en mér finnst bara að ég eigi að vera að gera eitthvað annað en að hanga í tölvunni svona yfir sumartímann.

Síðastu helgi eyddum við í Skaftárdalnum góða þar sem að ég flaug af fjórhjóli og er öll krambúleruð en það var samt rosa stuð. Vonandi verða marblettirnir farnir fyrir brúðkaupið um næstu helgi...úúú en spennandi að vinkona manns sé að fara að gifta sig. það verður æðislegt. :)

ég nenni ekki að skrifa meira það er allt gott að frétta :)

Erna..............bla bla bla


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 20:30:42 / ernaelli

slök slök...

mapur nennir svo innilega ekki að skrifa eitthvað í tölvu þegar sumarið er komið...þá langar manni bara í bjór og vera úti að grilla. En þar sem að það er ekkert búið að vera neitt sérstaklega gott veður núna þá ætla ég að skrifa smá.

um  síðustu helgi hitti ég afar skemmtilegt fólk. :haha: þetta voru hálfsystikini pabba míns sem eiga heima í Svíþjóð og Hollandi. Ég hef aldrei á minni litlu ævi hitt þetta fólk og það gerði þetta ennþá skemmtilegra. þau komu  á föstudaginn og við borðuðum með þeim og svo stungum við Elías af í sveitina en hún Unnur var búin að bjóða okkur í afmælið sitt. Það var mjög gaman þar og vil ég þakka kærlega fyrir mig. Á laugardaginn drifum ég, mamma og Sigurbjörg Eva okkur til Hvammstanga (með útlensku systkinunum) þar sem önnur systir hans pabba á heima en ég hef ekki hitt hana síðan ég var 5 ára (sterk sambönd í fjölskyldunni) og núna er ég búin ða fatta afhverju ég er svona fyndinn, og hlæ svona mikið ;) það er af því að ég er skyld þessu fólki. það var svo gaman og mikið stuð hjá þessu fólki að ég bara átti ekki orð og hló bara. ég fékk að heyra góðar sögur af föður mínum og þetta útskýrir svo margt, t.d afhverju ég´og pabbi erum svona skrítin á köflum. :$

Svo er maður bara búin að vera að púla í póstinum, lyfta þungum bréfum og flokka þau í flókin hólf.

svo er bara stuð sumar framundan og mikið að gera, Elías er búin að fylla upp í fallegu holuna þar sem húsið okkar á að standa og maður er núa aðeins farin að tína í kassa og svona, voða spennó :lol:

Svo er vinkona mín sem er einu ári yngri en ég að fara að gifta sig....það er nú ágætt merki um að maður er að eldast þegar fólk yngra en maður sjálfur er að fara að gifta sig, ja hérna hér...en það verður voða gaman og rómantískt (ég fer örugglega að grenja úr rómantík ;)) en brúðhjónin eru yndislegt fólk.

já ég nenni ekki að skrifa meir, ég ætla að fara að tala við barnið mitt...hún er svo fyndin

Erna J.....................mikið að gerast :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 21:34:43 / ernaelli

heilinn minn stendur sig vel :)

jæja jæja jæja.....það er engin takmörk fyrir gáfum mínum :)

muniði eftir kallinum sem ég fann í fjöru og brókaði ??

það hefur greinilega virkað því að ég fékk 6,5 í mjög erfiðu fagi....ví ví ví

núna þarf ég ekki að finna hann aftur og láta hann borða nærbuxurnar sínar....

....heppinn hann

vildi bara deila hamingju minni með ykkur :haha:

Erna J.......................happy happy happy


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 09:51:25 / ernaelli

Gáfnaljós....

úje ég var að fá 8,5 úr öðru prófi

I am so smart, S-M-R-T

I mean S-M-A-R-T

:D

Erna J..................úber klára


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 18:11:57 / ernaelli

Jeg synes Köbenhavn er sjovt :)

Jæja komin heim frá köben og það var svoooooo gaman :haha: bara verslað, djammað og látið eins og kjáni...það er alltaf svo gaman. Við fórum og sáum Silvíu Nótt detta úr keppni með 100 öðrum íslendingum og ég held að Danirnir hafi ekkert litist á hana :$ sem er bara ekkert skrítið finnst mér...

Svo á föstudaginn var bara verslaður af sér afturendinn og Visakortið stóð sig mjög vel :D Svo um kvöldið kíktum við á djammið og enduðum á samkynhneigðum skemmtistað sem var mjög skemmtilegur...samkynhneigða fólkið kann sko að velja réttu tónlistina ;) á laugardaginn var okkur boðið í ljótufata partý hjá íslendingum og þar sem við Auður vorum ekki með nein ljót föt með okkur (við hefðum nú alveg getað verslað handklæðasamfestingana í HM ;) ) þannig að við byrjuðum á því að fara að borða á Spiseloppen sem er rosa fínn staður í Kristjaníu og svo fórum við í partýið og snerum fötunum okkar bara við...þau voru ljót á röngunni :)

Við komum heim mjög seint vegna þess að það vildi enginn skutla okkur heim...sem ég skil ekki því við vorum svo fyndin og skemmtileg :haha:

Svo fór sunnudagurinn bara í rólegheit, óhollan mat og mikinn galsa :)

ég vil þakka öllum þeim sem sýndu mér athygli og hlýhug í Danmörku og vonast til að geta farið þangað sem fyrst aftur :)

En núna ætla ég að fara að tékka á prófunum mínum en ég er búin að fá 8,5 úr einu...oh ég er svo klár :)

Erna J.....................Danskur aðdáandi og snillingur með meiru


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 21:52:40 / ernaelli

hvað er að frétta ??

það er allt gott hjá mér :)

ég kláraði prófin mín í dag vúhú :haha: og mér heyrðist á gaurnum sem ég fann í fjöru og brókaði fyrir að hafa fundið upp á þessu fagi ætli að gefa mér allavega 5...ef ekki sagði ég honum að hann þyrfti að éta nærbrækurnar sem ég brókaði hann með. og ég efast um að hann vilji að nærbrækurnar fari sömu leið út og þær fóru inn...hehehe ég er svo vond :klikk:

En svo er ég bara að fara að skella mér til kóngsins köbenhavn þar sem ég ætla að horfa á Sylvíu Nótt syngja í Eurovision (ég held að þetta verði algjört flopp, en vona ekki samt) það verður gaman að sjá og heyra hvað Dönum finnst um dívuna okkar :D já og svo ætla ég aðeins að kíkja í H&M og sjá hvað syngur í honum Carlsberg vini mínum :haha: hann er svo skemmtilegur...

En svo er það bara vinna á mánudaginn en ég mun vera póstkona í sumar sem er bara ljómandi fínt...kellingarnar eru svo hressar og launin eru frábær :$ eða þannig...ég er viss um að hestarnir í sveitinni fá meiri pening fyrir að skíta á gras svo grasið verði fallegt hehe...en það er frábært að vinna í póstinum á Selfossi.

En þetta er nóg af bulli í bili ég mun ábyggilega næst koma með ferskar fréttir frá Danmörku...8|

Erna J..................kærlig hilsen


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 22:31:47 / ernaelli

bla bla bla...

Eruð þið ekki orðin svolítið leið á því að horfa á þessa könnun í hvert skipti sem þið komið hingað (ég býst við því að það sé alltaf sama fólkið sem kíkir hingað)

Annars eru þessum prófa helvítum að ljúka (ekki það að ég sé búin að vera neit samviskusöm og sitja alveg sveitt yfir bókunum sko) manni langar bara að fara að gera eitthvað annað eins og að fara til Kaupmannahafnar að heimsækja Sigurbjörgu og Aðalbjörn:haha: en það er bara eitt próf eftir og það er próf í leiðinlegasta fagi sem hugsast getur. Ef ég finn manneskjuna sem fór eitthvað að pæla í þessu rugli þá skal ég finna hana í fjöru og bróka hana svo hressilega að hún gubbar nærbuxunum sínum :klikk:  já það er próf í Enskri málsögu...andsk...djöfuls...helv...:!: nei nei ég á eftir að standa mig vel í því eins og öllu hinu. Ég er neflilega búin að komast að því að ég er ekki bara hattastandur þar sem veðurfarið einkennist af 10 vindstigum milli eyrnanna minna o neeeiii ;)

en núna er Desperate Housewifes að byrja og ég vil njóta þessarar kvöldstundar áður en ég byrja að læra fyrir síðasta prófið á mánudaginn....!!

Erna J..................stóri heili


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan